Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Golfbúðin og afgreiðsla GM á Hlíðavelli lokar frá og með 3. október

29.09.2022
Golfbúðin og afgreiðsla GM á Hlíðavelli lokar frá og með 3. október

Nú styttist í að golftímabilinu þetta árið fari að ljúka og hefur sumarið verið svona upp og niður! Það hefur engu að síður verið mikið að gera á okkar golfvöllum og kylfingar duglegir að spila þrátt fyrir risjótt veðurfar.

Afgreiðslan/golfbúðin á Hlíðavelli verður opin út þessa viku eða til og með næstkomandi sunnudags.

Blik verður að sjálfsögðu opið áfram.

Vellir klúbbsins verða opnir fyrir félagsmenn meðan að veður leyfir og vonum við svo sannarlega að október verði okkur góður og að hægt verði að spila golf eitthvað áfram.

Skrifstofa klúbbsins er opin alla virka daga frá kl. 8 til 16 og hvetjum við ykkur til þess að hafa samband við þangað ef eitthvað er.

Að lokum viljum við svo þakka ykkur fyrir skemmtilegt golfsumar og sjáum ykkur vonandi sem flest í inniaðstöðunni okkar í vetur :)