Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Ingi Þór Ólafsson valinn íþróttamaður Seltjarnarness

12.02.2024
Ingi Þór Ólafsson valinn íþróttamaður Seltjarnarness

Ingi Þór, kylfingur í Golfklúbbi Mosfellsbæjar kjörinn íþróttamaður Seltjarnarness. Ingi leikur á mótaröð þeirra bestu og endaði í 8. sæti á stigalista mótaraðarinnar 2023. Hápuktur sumarsins var 4. sæti í Íslandsmótinu í höggleik en einnig var hann í öðru sæti í Hvaleyrarbikarnum. Ingi Þór lék í karlasveitinni okkar sem sigruðu Íslandsmót golfklúbba 2023 og má segja að Ingi Þór hafi verið einn af lykilmönnum sveitar GM. Í kjölfarið var hann valinn í lið þriggja kylfinga úr GM til að leika á Evrópumóti golfklúbba í Portúgal.

Ingi Þór fór í tvö úrtökumót fyrir Nordic mótaröðina í haust og lék frábært golf og tryggði sér fullan þátttökurétt á mótaröðinni fyrir keppnistímabilið 2024. Einnig var Ingi Þór valinn í landsliðshóp GSÍ fyrir 2024.

Óskum við Inga innilega til hamingju með valið.