Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Mátunardagar - GM merktur fatnaður

22.02.2023
Mátunardagar - GM merktur fatnaður

Dagana 26. febrúar til og með 1. mars verður boðið upp á mátunardaga á GM merktum fatnaði fyrir sumarið 2023.

Í meðfylgjandi auglýsingu má sjá upplýsingar um þær flíkur sem eru í boði ásamt verðum.

Fatnaðurinn verður á tilboðsverði þessa daga og því um að gera að nýta sér það og græja sig fyrir sumarið.
Um grunnfatnað er að ræða frá FootJoy sem við pöntum inn á hverju ári ásamt nokkrum nýjungum.

Hægt er að koma við í golfbúðinni okkar og máta á eftirfarandi tímum:

Sunnudagur 26 febrúar – frá 18:00 – 20:30 (púttkvöldi karla)

Mánudagur 27 febrúar – frá 8:30 – 16:00

Þriðjudagur 28 febrúar – frá 8:30 – 16:00

Miðvikudagur 1 mars – frá 08:30 – 16:00 og frá 20:00 – 21:30 (púttkvöldi kvenna)

Komdu við, mátaðu og pantaðu þér flottar vörur á góðu verði.

Vonumst til þess að sjá sem flesta í GM merktum fatnaði í sumar!

gm merktur fatnaður mátunardagar.pdf

Einnig ætlum við að bjóða eldri vörur sem við eigum til hjá okkur á lager á frábæru verði.