Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

Uppskeruhátíð barna- og unglinga 2023

29.09.2023
Uppskeruhátíð barna- og unglinga 2023

Vel heppnuð uppskeruhátíð fór fram fimmtudaginn 28. september fyrir golfsumarið 2023. Rúmlega 60 iðkendur mættu í Klett og var keppt í 3 greinum, púttkeppni, vippkeppni og golf Kahoot og veitt voru verðlaun fyrir þessar greinar. Því næst var boðið upp á hamborgara sem endaði með verðlaunaafhendingu fyrir Prósjoppumótaröðina og viðurkenningar GM.

Eftirfarandi voru sigurvegarar Prósjoppumótaraðarinnar en 3 bestu hringir sumarsins gildu til verðlauna:

U14 með forgjöf

1. Óskar Jóhann Sigurðsson
2. Pálmi Þór Kristmannsson
3. Eiríka Malaika Stefánsdóttir

U14 án forgjafar

1. Sara María Guðmundsdóttir
2. Grétar Logi Gunnarsson Bender
3. Ásgeir Páll Baldursson

15-21 með forgjöf

1. Aron Frosti Davíðsson
2. Arnar Dagur Jónsson
3. Ásþór Sigur Ragnarsson

15-21 án forgjafar

1. Auður Bergrún Snorradóttir
2. Pamela Ósk Hjaltadóttir
3. Kristján Karl Guðjónsson

Við þökkum Prósjoppunni fyrir stuðninginn við afreksstarfi GM!


Viðurkenningar GM fyrir golfsumarið 2023:


Ásgeir Páll Baldursson, Besta ástundun


Dagbjört Erla Baldursdóttir, Mestu framfarir


Grétar Logi Gunnarsson Bender & Eiríka Malaika Stefánsdóttir, Efnilegust


Pamela Ósk Hjaltadóttir & Hjalti Kristján Hjaltason, Kylfingar ársins


Berglind Erla Baldursdóttir, Háttvísisbikarinn

Við óskum kylfingum innilega til hamingju með flottan árangur í sumar en alls voru 6 Íslandsmeistaratitlar í unglingaflokkum og 2 í fullorðinsflokkum hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar árið 2023.