Golf Mosfellsbær
Mosfellsbær, Ísland

HAPPY CAMPERS ÚRSLIT

25.05.2020
HAPPY CAMPERS ÚRSLIT

Í dag fór fram Opna Happy Campers golfmótið hjá okkur á Hlíðavelli. Veðurguðirnir voru ekki í sínu besta skapi og voru aðstæður nokkuð erfiðar. Það voru engu að síður fjölmargir kylfingar sem létu veðrið ekki stoppa sig og þökkum við þeim öllum kærlega fyrir komuna. Keppnin var virkilega spennandi og voru þrjú efstu liðin öll jöfn á 66 höggum nettó og því þurfti að reikna til baka.

Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:

1. Sæti – Tómas Hallgrímsson og Gunnar Stefán Jónasson.

2. Sæti – Haukur Lárusson og Arnar Freyr Reynisson.

3. Sæti. – Stuart Mitchinson og Harpa Sigmundsdóttir.

Næst holu á 3. braut – Sigurður Sveinsson, 73 cm
Næst holu á 7. braut – Haukur Bragason, 34 cm
Næst holu á 15. braut - Hlín Hólm, 1,31 metri.
Næst holu á 18. braut - Björgvin Hólmgeirsson, 73 cm.

Lengsta upphafshögg á 8. Braut – Stefán Þ. Steindórsson

Óskum við vinningshöfum innilega til hamingju, geta þeir nálgast vinningana á skrifstofu GM frá og með kl. 12:00 á morgun mánudag 25. maí.

Að lokum þökkum við Happy Campers kærlega fyrir að vera með okkur í þessu móti ????